Það hafa margir veitt maríulaxinn sinn þetta árið og fjöldi ungra veiðimanna í þeirra hópi. Fleiri og fleiri ungir veiðimenn bætast í veiðihópinn á hverju ári. Það er tilgangurinn með veiðinni.
Fyrst við erum að tala um maríulaxa, sá að þegar ég fletti veiðibókinni í Miðá í Dölum fyrir nokkrum dögum að þar veiddust þrír maríulaxar sama daginn, vel gert!
Þetta er Einar Már Haukdal Frímannsson, hann veiddi maríulaxinn sinn í veiðiá, á Vatnsnesi, í Vestur Húnavatnssýslu. Laxinn tók maðk og eftir mörg stökk og mikil læti náði pabbinn að háfa fiskinn. Hann mældist 59cm og 4 pund.
Veiðimaðurinn var rosalega kátur með fiskinn og á örugglega eftir að veiða fleiri laxa.
Ljósmynd/Einar Már Haukdal Frímannsson
Stangveiði – Veiðin.is · Lesa meira