Veiðifélag Andakílsár byggir nú nýtt veiðihús fyrir veiðimenn sína. Um er að ræða 168,5 fermetra tréhús á einni hæð með fallegu útsýni yfir ána og sveitina. Skessuhornir trónir þar tignarlegt í öndvegi.
Í húsinu verða fjögur rúmgóð tveggja manna herbergi og hvert þeirra með sér baðherbergi. Eldhús og stofa er einnig rúmgóð með útgengi á 75 fermetra verönd.
Það mun ef að líkum lætur fara vel um veiðimenn, þegar þeir halda til veiða í Andakílsá næsta sumar.
Veiðar · Lesa meira