Rólegt í Hrútafjarðará en einn og einn á land

„Við vorum að hætta veiðum í morgun í Hrútafjarðará og ég missti vænan lax í Skokki í morgun,“ sagði Karl Kristján Ásgeirsson sem hefur verið við veiðar í Hrútafjarðará síðustu daga og það veiddist einn lax í hollinu og tíu flottar bleikjur í Dumbafljótinu.

„Það er ekki mikið gengið af laxi í ána ennþá en ég lenti í skemmtilegum laxi og þrjátíu mínútu viðeign á öðum degi veiðanna. Setti í hann lax í Surtarbolla á Sunray og það var gaman 86 sentimetra hrygna, var svakalega þykk 40, sentímetra í ummál. Þurfti vini á næstu stöng til að háfa fiskinn og var frábær viðureign, sem endaði á besta mögulega hátt,“ sagði Karl Kristján enn fremur.

Ljósmynd/Karl Kristján Ásgeirsson með annan laxinn úr Hrútafjarðará á þessum sumri

Veiðar · Lesa meira

Hrútafjarðará