Sjö laxar í Kjarrá á fyrsta degi

„Já þetta byrjaði bara vel en það veiddust alla vega sjö á fyrsta degi í Kjarrá og nokkrir sluppu, fínn dagur,” sagði Ingólfur Ásgeirsson við opnun Kjarrár í Borgarfirði en Þórarinn Sigþórsson veiddi fyrsta fiskinn í áni þetta árið.

„Dagurinn var fínn hjá okkur,” sagði Ingólfur enn fremur.

Fyrsti laxinnn er kominn í Miðjarðará en erfiðlega hefur gengið með fyrsta laxinn í Laxá í Kjós. Enginn lax fyrir hádegi enda hávaða vestan rok og vatn fer minnkandi í ánni. En laxar sést á nokkrum stöðum og þrír tóku grannt og sluppu af.

Hann er á í Kjarrá á fyrsta degi

Veiðar · Lesa meira

Þverá & Kjarrá