,,Þetta var fínt veiðitúr í Svartá og við enduðum í 14 löxum og svo fengum við nokkra væna urriða“ sagði Rafn E Magnússon sem var að koma úr Svartá í Húnavatnssýslu, en áin hefur gefið 125 laxa það sem af er veiðitímanum.
,,Þessi stóri hængur veiddist í Brúarhyl og var 91 sentímetri, hann tók Collie Dog númer 16, það var gaman,, sagði Rafn um veiðitúrinn í Svartá.
Blanda er komin á yfirfall en áin er komin í 418 laxa sem er aðeins minni veiði en á sama tíma í fyrra en það er komið yfirfall. Og þá gerðist lítið eftir það.
Ljósmynd/Rafn E. Magnússon með fallegan hæng úr Svartá
Stangveiði – Veiðin.is · Lesa meira