Tímamótasamningur um Vatnsdalsá

Veiðifélag Vatnsdalsár samþykkti einróma nýjan samning við G og P ehf á aðalfundi félagsins í gær. Óhætt er að segja að um tímamótasamning sé að ræða. Hann er til tíu ára og leigan fyrir laxahluta árinnar hækkar ekki milli ára.

Fulltrúar leigutaka og stjórnar Veiðifélags Vatnsdalsár. Frá vinstri: Sturla Birgisson, Björn K. Rúnarsson, Egill Herbertsson, Sigfús Ingimundarson og Kristján Þorbjörnsson formaður veiðifélagsins. Á myndina vantar tvo stjórnarmenn, þau Berglindi og Jakob. Ljósmynd/Vatnsdalsá

mbl.is – Veiði · Lesa meira