Blöndulón að fyllast og stutt í yfirfall

Vatns­hæð í Blönd­u­lóni er að nálg­ast yf­ir­fall. Ein­ung­is vant­ar nokkra sentí­metra upp á að lónið nái yf­ir­falls­hæð, sem er 478 metr­ar yfir sjáv­ar­máli. Í gær var vatns­staðan 477,64 metr­ar yfir sjáv­ar­máli. „Þetta gerðist síðast árin 2003 og 2004, að lónið fyllt­ist svona snemma,“ upp­lýsti Jón­as Þór Sig­ur­geirs­son, stöðvar­stjóri Blöndu­stöðvar í sam­tali við Sporðaköst.

Allt að 200m3/​sek. inn­streymi hef­ur verið í lónið síðustu daga. Í gegn­um Blöndu­stöð eru að fara um 60m3/​sek. á dag í fullri keyrslu. Vatns­veður í síðustu viku leiddi til þess að mik­il hækk­un varð á yf­ir­borði lóns­ins. Frá 1. maí hef­ur hækkað í lón­inu um rúm­an meter. Ef fer fram sem horf­ir get­ur yf­ir­fall brostið á fljót­lega. Þeir sem mest­ar áhyggj­ur hafa af þess­ari stöðu eru veiðimenn sem stefna á lax eða sil­ungsveiði í Blöndu, sem liðast um Langa­dal og á ós í Blönduósi. Sil­ungsveiði er haf­in og laxveiðin hefst í byrj­un júní.

Langidalur sem Blanda fellur um á leið sinni til sjávar. Svo mikið vatnsmagn hefur runnið í Blöndulón í vetur, að lónið er að verða fullt og yfirfall yfirvofandi. www.mats.is

mbl.is – Veiði · Lesa meira