Baugstaðaós

Suðurland
Eigandi myndar: leyfi.is
Calendar

Veiðitímabil

01 júní – 20 október

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Fishing rod

Fjöldi stanga

2 stangir
Stop

Kvóti

5 fiskar á stöng/dag

Gistimöguleikar

Veiðihús
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi
Dollar

Verðbil

heill dagur

26000 kr. – 26000 kr.

Tegundir

Veiðin

Baugstaðaós er skammt austan Stokkseyrar. Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu. Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá. Ósinn á sér langa sögu, einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði. Fiskurinn er misstór: frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera. Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund. Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori.

Gisting & aðstaða

Veiðihús

Veiðihús fylgir svæðinu og stendur það á lækjarbakkanum að austanverðu rétt við veginn. Húsið er merkt Veiðihúsið Tungu. Þar er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, salerni, raflýsing (sólarrafhl.), gashitun, gashellur o.fl. Veiðimenn skulu rýma húsin fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl.

Veiðireglur

Eingöngu er heimilt að veiða á flugu eftir 10. október og ber að sleppa öllum sjóbirtingi á þessum tíma.

Veiðibók: Liggur frammi í veiðihúsi, veiðimönnum er skylt að skrá allan afla.

Kort og leiðarlýsingar

Veiðisvæðið nær frá brú skammt fyrir ofan veiðihús niður í sjó og frá útfalli Skipavatns. Tiltölulega stutt og með 10 merkta veiðistaði

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Stokkseyri: einungis 5 km, Selfoss: um 20 km, Reykjavík: um 70 km, Akureyri: um 440 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Félagar í SVFS fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi seld á leyfi.is

Veiðivörður: Björgvin Njáll Ingólfsson, Tungu s: 693-3010 / 566-8191

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Suðurland

Vinsælar flugur


Fréttir af veiði Baugstaðaós

Baugastaðaós að tikka inn heldur betur

Frábært í Stóru Laxá í Hreppum „Við vorum í Baugstaðaós og veiðin gekk flott, rígvænir fiskar,“ sagði veiðimaður sem var þar fyrir skömmu en Baugstaðaós hefur gefið yfir 300 sjóbirtinga

Lesa meira »
Shopping Basket