Eins og er ráðstafa flestir landeigenda veiði fyrir sínu landi sjálfir og er leyfður veiðitími og veiðiaðferðir ekki samhæfðar. Breytingar á leigutökum og söluaðilum eru nokkuð algengar. Lengi hefur verið óljóst með ráðstafanir á þrem neðstu svæðunum. Nú er neðsta svæðið komið í leigu manna sem nefna sig Sportmenn Ísland. Veiðisvæðið er allra neðsti hluti Grenlækjar og vatnaskilin þar sem hann fellur út í Skaftá í svokölluðum Veiðiósi.
“Við hjá Sportmönnum Íslands getum boðið uppá veiðileyfi á ansi skemmtileg veiðisvæði og þar af eitt sem hefur verið lokað hinum almenna veiðimanni frá um 1960. Þarna er nánast eingöngu jeppafært og um svæðið ganga nokkur þúsund sjóbirtinga, þetta er dálítið krefjandi veiðisvæði fyrir alvöru veiðimenn”