Haukadalsá á upptök sín í Haukadalsvatni sem er stærsta stöðuvatn Dalasýslu. Vatnið sér ánni fyrir stöðugum vatnsbúskap vel inn í ágúst jafnvel í verstu þurrkasumrum. Áin hefur verið kölluð hin fullkomna fluguveiðiá. Hún er einungis um 8 km löng en þó með um 40 merkta veiðistaði þannig að hér tekur hver veiðistaðurinn við af öðrum. Áin er kjörin fyrir flotlínu og smáar flugur og gárubragðið.

Eldislax veiddist í Haukadalsá
Þessi fiskur veiddist í Haukadalsá í Dölunum við Breiðafjörð í dag og er augljóslega eldislax. Það má meðal annars sjá á sporði og aflöguðum neðri kjálka. Hópurinn við ána landaði