Laxá í Hvammsveit

Vesturland
Eigandi myndar: BTH
Calendar

Veiðitímabil

Fishing rod

Fjöldi stanga

2 stangir
Stop

Kvóti

Ótakmarkað
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þarfnast leyfi, Jepplingar
Dollar

Verðbil

heill dagur

Tegundir

Veiðin

Laxá í Hvammssveit er lítil á í Dölum sem fellur til sjávar í Hvammsfjarðarbotn. Áin er dragá, mynduð af fjölmörgum ám og lækjum, en stærstar þeirra eru Sælingsdalsá og Svínadalsá. Svínadalsá var áður fiskgeng tæplega 1 km að Geirmundarfossi, en árið 2009 var sprengdur fiskvegur framhjá fossinum og opnaðist þá 2 km búsvæði ofan við fossinn. Lax getur gengið um 7 km leið í Sælingsdalsá, en Hólafoss neðst í ánni er veruleg gönguhindrun fyrir lax. Einnig verður vart við bleikju og urriða. Veiðileyfi eru ekki í boði fyrir almenning.

Kort og leiðarlýsingar

Veiðisvæðið spannar sjálfa Laxána, 3 km svæði í Svínadalsá og 7 km svæði í Sælingdalsá

Veiðileyfi og upplýsingar

Veiðiklúbburinn Laxmenn eru með ánna á sínum snærum og veiðileyfi ekki í boði fyrir almenning

Daglegur veiðitími

24 klukkustundir

Staðsetning

Vesturland

Fréttir af veiði Laxá í Hvammsveit

Engin nýleg veiði er á Laxá í Hvammsveit!

Shopping Basket