Um Ölfusá gengur mikill fjöldi laxa á leið sinni á sína heimaá. Stór hluti gengur í Sogið og eins er Hvítárstofninn stór en til hans teljast allir þeir fiskar sem eiga heimkynni í þeim fjölmörgu þverám sem í Hvítá renna. Þeir laxar sem veiðast í Ölfusá innan bæjarmarka Selfoss eru að langmestu eða öllu leiti göngufiskur enda er aðalveiðitímabilið frekar stutt, eða frá því í endaðan júní og fram í byrjun ágúst. Veiðar í Ölfusá á svæðum Stangaveiðifélags Selfoss fara fram fyrir landi tveggja jarða, Fossnes og Hellis. Meðalveiði er um 230 laxar á síðustu 10 árum. Einnig er boðið upp á vorveiði á svæðunum, frá og með 1. maí til 10. júní.

Rólegt en einn og einn fiskur
„Lítil laxveið hefur verið í sumar á veiðisvæði Stangveiðifélags Selfoss í Ölfusá við Selfossi,“ segir Kári Jónsson, sem var á veiðislóð fyrir austan og bætir við; „ég átti 3 daga