Vatnsdalsvatn

Vestfirðir
Calendar

Veiðitímabil

01 júní – 20 september

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Stop

Kvóti

Ótakmarkað
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi
Dollar

Verðbil

heill dagur

2000 kr. – 2000 kr.

Tegundir

Veiðin

Vatnsdalsvatn er 2,2 km² að flatarmáli. Mjög aðdjúpt er vestan megin en grynnra að austan. Vatnið er um 8 m yfir sjávarmáli og mesta dýpi þess er um 30 m. Mest er af bleikju í vatninu, sjóbleikju og einstaka lax veiðist ár hvert. Mest fæst af 1-3 punda fiski.  Á hverju sumri veiðist einnig töluvert af vænni bleikju, allt að 6 – 7 pundum. Bestu veiðistaðirnir eru við árósa og útfall vatnsins. Jafnframt eru veiðistaðir á Viteyri, sem er fyrir miðju vatninu vestan megin, og Kofanesi sem er fremst í vatninu. Um 30 mínútna gangur er að Lambagilseyrum austanvert við vatnið. Við strandlengjuna á þessari gönguleið eru fjölmargir veiðistaðir. Ekki er leyfilegt að veiða í ám, sem tengjast vatninu. Mörk vatnsins og ánna eru sérstaklega merkt.

Gisting & aðstaða

Hótel

Hótel Flókalundur, s: 456-2011, flokalundur.is

Gistihús

Gamli Bærinn, s: 824-3108, westfjords.is

Tjaldstæði

Ekki er heimilt að tjalda við vatnið, enda er um friðland að ræða. Hins vegar eru tjaldstæði við Hótel Flókalund: 2 km og Brjánslæk: 8 km.

Aðrir gistimöguleikar

Orlofsbyggðin við Flókalund, s: 456-2044, er góður kostur fyrir marga.

Veiðireglur

Vatnsfjörður er friðland og eru veiðimenn beðnir um að skilja ekki eftir sig neinar leifar eða ummerki. Stranglega er bannað að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Sleppa verður öllum laxi og allri bleikju og sjóbirtingi undir 35 cm.

Frábærar gönguleiðir eru í nágrenni Vatnsdalsvatns. Nefna má gönguleiðir á Lónfell, þaðan sem Hrafna-Flóki gaf landinu nafnið Ísland, og til Flókatófta sem eru spölkorn frá ferjubryggjunni á Brjánslæk. Jafnframt tengist Vatnsfjörðurinn Gísla sögu Súrssonar og er svokallaður Gíslahellir austanvert í firðinum.

Kort og leiðarlýsingar

Veiði er heimil í öllu vatninu.

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Bíldudalur: um 50 km, Ísafjörður: 93 km, Reykjavík: 330 km og Akureyri: 448 km

Áhugaverðir staðir

Gíslahellir: 8 km, Dynjandi: 40 km og Látrabjarg: 98 km.

Önnur þjónusta

Ferjan Brjánslæk,  saeferdir.is

Veiðileyfi og upplýsingar

Vatnið er hluti af Veiðikortinu 

Upplýsingar og dagsleyfi: Brjánslækur s: 433-2254 og á fluga.net

Landvörður: Hótel Flókalundur s: 456-2011 &  Veiðivörður: Brjánslækur: 456-2055

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Vestfirðir

Fréttir af veiði Vatnsdalsvatn

Shopping Basket