Mörður Áslaugarsson með maríulaxinn sinn úr Andakílsá
,,Þetta var fínn túr í Andakílsá en ég landaði sjö löxum og missti laxa til viðbótar, það var mikið líf“ sagði Atli Bergmann sem var að koma úr Andakílsá í Borgarfirði fyrir fáum dögum en áin hefur gefið 250 laxa en í fyrra gaf áin allt sumarið 666 laxa.
,,Já, áin virkaði full af fiski á öllum stöðum, fór með félaga mínum Merði sem tók maríulaxinn, mjög ánægjulegt“ sagði Atli um veiðiferðina í Andakílsá.
Á sama tíma var veiðiklóinn klóka, Hafsteinn Már Sigurðsson að klífa steina og árbakka við Þverá Í Dölum með eiginkonu sinni og þau settu í fiska en þeir fóru af eftir stutta baráttu. En veiíðitúrinn var mjög góður og labbitúrinn líka , en eitthvað af fiski í henni.
Ljósmynd/Mörður Áslaugarsson, tekin af Atla Bergmann
Stangveiði – Veiðin.is · Lesa meira