Flottur birtingur á Vatnasvæði Lýsu

„Já ég fékk þennan  flotta sjóbirting neðarlega á Vatnasvæði Lýsu,“ sagði Ágúst Tómasson, sem var á Vatnasvæði Lýsu í vikunni.  En veiðimenn hafa verið að fá fiska á svæðinu fyrir skömmu og þar á meðal laxa. Eitthvað hefur veiðst af laxi allavega nokkra fiskar. 

„Þetta var 62 sentimetra fiskur sem ég fékk og það var bara skemmtilegt og síðan fengum við tíu smábleikjur í lækjunum,“ sagði Ágúst ennfremur.

Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa bleikjur og veiðimaður sem var fyrir skömmu fékk tíu bleikjur, sæmilega fiska. 

Mynd. Ágúst Tómasson með sjóbirtinginn flotta af Vatnasvæði Lýsu í vikunni. 

Veiðar · Lesa meira

Lýsa vatnasvæði