Veiðin byrjar með látum í Elliðavatni

Það má segja að veiðin hafi byrjað með látum í morgun um sjöleytið í Elliðavatni en þá voru fyrstu veiðimennirnir mættir á staðinn til að renna fyrir fisk. Hann Alfreð Maríusson veiddi þrjá flotta urriða á klukkutíma segir á vef Veiðikortsins. Fína fiska.

„Þetta var óvenjulega góð veiði enda gott veður til veiða,“ sagði veiðimaðurinn Alfreð Maríusson á bökkum vatnsins.  Margir eru byrjaðir og fleiri á leiðinni upp að vatni en Veiðikortið bíður ekki bara uppá kaffi og kleinur í dag við heldur verður alvöru veiðslu við Elliðavatn og stendur í tvo dag. Þarna verða Caddisbræðurnir Hrafn og Ágúst ásamt Ólafi Tómasi urriða.  Síðan bíður Skóræktin upp á fróðlega gönguferð um svæðið klukkan eitt.

Það má segja að það sé veisla við Elliðavatn í dag, fiskurinn er byrjaður að veiðast og fróðleikurinn flæðir um allt.

Alfreð Maríusson með þrjá flotta urriða /Mynd Veiðikortið

Veiðar · Lesa meira

Elliðavatn