Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Kastæfingar hjá Stangaveiðifélagi Akureyrar (SVAK)

febrúar 24 @ 12:00 - mars 18 @ 14:00

Kæra stangveiðifólk nær og fjær!

 

Kastæfingar eru hafnar hjá SVAK og fara þær fram í íþróttahúsinu á Hrafnagili frá kl. 12:00 – 14:00. Æfingarnar eru bæði hugsaðar fyrir byrjendur og lengra komna. Eina sem þú þarft að gera er að mæta með stöngina þína. Ef þú ert byrjandi og átt ekki búnað er möguleiki að fá hann lánaðan. Vanir kastarar verða á staðnum og leiðbeina. Eingöngu er hægt að æfa köst með einhendu innanhúss. Stefnt er á að hafa æfingar með tvíhendu úti þegar vorar. Tímasetningar eru eftirfarandi:

  • Þann 10. febrúar – byrjendur og lengra komnir 
  • Þann 24. febrúar – konur eingöngu
  • Þann 2. mars – byrjendur og lengra komnir
  • Þann 16. mars – byrjendur og lengra komnir

Vinsamlegast skráið þátttöku á [email protected] og ef þú ert byrjandi og átt ekki stöng væri gott að þú tækir það fram í póstinum.

Allir eru velkomnir á námskeiðið

Kastkveðjur, stjórn SVAK

Details

Start:
febrúar 24 @ 12:00
End:
mars 18 @ 14:00
Website:
https://www.svak.is/news

Venue

Kastæfingar hjá SVAK
Akureyri, 600 Iceland + Google Map
View Venue Website
Shopping Basket