Boltafiskur úr Flughyl í dag – Láxá á Ásum að bæta veiðina á milli ára

Veiðin er að batna í Laxá á Ásum á milli ára og núna eru komnir yfir 700 laxar á land þetta sumarið. Í gærkvöldi veiddist stærsti laxinn í ánni og það var veiðikonan  Erla Þorsteinsdóttir sem fékk 103 sm boltalax í Fluguhyl.  Þetta var hörkubarátta við laxinn. 

Veiðikonan  Erla hafði veitt tvo laxa um ævina og þetta hennar langstærsti til þessa en þetta er annar stærsti lax á land úr laxveiðiánum í sumar, sá stærsti veiddist í Iðu í Hvítá og var 104 sm. 

Veiðar · Lesa meira

Laxá á Ásum