Frábær ferð og félagsskapur – 13 laxar og 16 sjóbirtingar 

Árleg veiðiferð hins íslenska veiðifélags Vöðlurnar, var í Grímsá í ár. Borgarfjörðurinn og Flókadalurinn skartaði sínu fegursta með dásemdar veðri og stórkostlegri birtu og logni.

Eitt af því sem ekki má vanta í veiði að mínu mati er gott kaffi á bakkanum, spjall um flugur, tökur og pólitík.  Hópurinn veiddi nokkuð vel  miðað við erfiðar aðstæður í sól og hita en mikið var af sjóbirting í ánni ásamt stórfínum laxi.  Á land komu 13 laxar og 16 sjóbirtingar.  Grímsá er að detta í 400 laxa.

Ljósmynd/Vöðlurnar

Stangveiði – Veiðin.is · Lesa meira

Grímsá & Tunguá