Sandá komin í gang!

Veiði hófst í Sandá í Þistilfirði þann 24. júní og var holl númer tvö að ljúka veiðum í gær. Hollið landaði 5 löxum og misstu nokkra.

Það er mikið vatn í Sandá sem er þó tær og flott. Talsvert af fiski er að ganga í þessum straumi og þegar síðustu veiðimenn hættu veiðum var áin að sjatna eftir rigningar. Það var talsvert af fiski á Fossbrotinu og hollið sem hóf veiðar í gær ætti að vera í góðum málum.

Mynd: Sigurjón Gísli Jónsson með spikfeitan, nýgenginn og lúsugan 80 sentimetrar

Veiðar · Lesa meira

Sandá í Þistilfirði