„Þessi yngri heitir Birgir Sveinsson Blöndal, 8 ára og fékk Maríulaxinn sinn í Höfuðhyl á Hörpu #16 og Benedikt, eldri bróðir hans, fékk sinn í Árbæjarhyl á Green Butt #18,“ segir Sveinn Blöndal faðir þessara efnilegu veiðimanna, sem voru við veiðar í Elliðánum í morgun.
Elliðaárnar hafa gefið 777 laxa sem er hundrað löxum meiri veiði en í fyrra.
,„Benedikt hafði einmitt fengið Maríulaxinn sinn í sama hyl fyrir ári síðan og þetta voru nettar hrygnur og báðum sleppt eftir snarpar viðureignir,“ sagði Sveinn ennfremur.
Ljósmynd/Fjör hjá bræðrum við Elliðaárnar í morgun
Veiðar · Lesa meira