Veiðitölur sumarsins úr Stóru Laxá

„Nú er ég búinn að taka saman veiðitölur eftir svæðum og hyljum fyrir árið 2022,“ sagði Ester Guðjónsdóttir, formaður veiðifélags Stóru Laxár í Hreppum, staðan er þessi:
„Alls veiddust 934 laxar, 40 urriðar og 4 bleikjur, alls 978 fiskar. Á neðra svæði veiddust 732 laxar, 37 urriðar og 4 bleikjur. Mest veiddist í Stekkjarnefi 163 laxar, Laxárholti 138, Bergsnös 115, Kálfhagahylur 100, Ófærustrengur 36, Kóngsbakki 20, Járnhylur 20, Flatistrengur 17, Heljarþröm 14, Neseyjaroddi 14, Sveinssker 10, Katlar 10 og minna í öðrum.   302 laxar voru yfir 70 cm og þar af tveir 100 cm, einn 101 cm og einn 102 cm. Á efra svæði veiddust 202 laxar og 3 urriðar. Mest veiddist í Hólmabreiðu 29, Klapparnef 24, Bláhyl 21, Flatarbúð 20, Heimahyljir 16, Dagmálahylur 16, Nálarhylur 9, Kambhylur 9, Ármót 8 og minna í öðrum. 142 laxar voru yfir 70 sm og þ.a. einn 100 sm.

Samtals voru því 444 laxar 70 sm og stærri. Öllu var sleppt aftur,“ sagði Ester í lokin og allt liggur þetta fyrir eftir sumarið 2022 í Stóru Laxa.

Ljósmynd/Stóra Laxá

Veiðar · Lesa meira

Stóra-Laxá I & II