Laxá á Skógarströnd rennur frá Götuvötnum á Rauðamelsheiði um 10km leið til sjávar í Árnhúsavog. Laxgengur hluti árinnar er hinsvegar einungis um 2 km. Blankur og Blængur eru þverár Laxár á laxgengum 2km kafla árinnar og inn í þessar þverár gengur einnig lax. Veiðin hefur verið að meðaltali um 130 fiskar á ári, en hefur þó sveiflast frá mjög lítilli veiði og upp í um 280 fiska. Áin er gríðalega viðkvæm fyrir þurrkum og á það til að þorna alveg upp á mestu þurrkasumrum. Veiðihús stendur við ánna.
Ný stöng – maríulax eftir smá stund
Þessi ungi herramaður Logan Örn er staddur er í heimsókn til Íslands yfir sumarið lét ekki segjast og nældi sér í sex punda Maríulax á sjö ára afmælisdeginum, klukkustund eftir