Mýrarkvísl er ein af hliðarám Laxár í Aðaldal. Eins og Laxá í Aðaldal er Mýrarkvísl þekkt fyrir háa meðalþyngd laxa og undurfagurt umhverfi. Mýrarkvísl rennur út í Laxá í Aðaldal um fjórum kílómetrum frá ósi Laxár. Þrátt fyrir að vera hliðará Laxár er varla hægt að segja að árnar séu líkar. Mýrarkvísl er viðkvæm veiðiá sem þarf að fara nokkuð varlega að til að ná góðum árangri. Það er lítið um miklar fyrirstöður í ánni fyrir laxinn fyrr en við Reykjafoss þar sem er laxastigi. Seldar eru stakar stangir einn dag í senn, eða þá holl þar sem allar 4 stangirnar eru seldar saman. Veiðin síðustu árin hefur verið á milli 80 – 180 laxar og um 600 urriðar.
„Var ekki að fara að synda eftir laxinum“
„Ég var alveg bugaður og þó ég sé ekkert mjög gamall þá er ég orðinn of gamall fyrir svona svaðilfarir. Mig langaði bara svo mikið í hann,“ sagði Matthías Þór